Tíminn sem eftir er....nýta hann vel

Tíminn er mikilvægur og oft heyri ég að fólk segist ekki hafa tíma  til þess og hins.  Nú er svo komið að tíminn hjá mínum ektakarli er ekki mikill eftir hér á meðal oss.   En sá tími er mikilvægur og hann er það líka fyrir aðra sem þykja vænt um hann og vilja samskipti við hann.   En ég upplifi aðeins að það er eins og það að vita að hans tími er ekki langur eftir gerir það að verkum að vinir og ættingjar hræðast það að hitta hann, finnst það e-ð svo óraunverulegt eða bara afneitum um að þetta er að gerast og þá er best að hitta ekkert á hann því þá gerist þetta auðvita ekki eða hvað .

Stundum getur það verið að tíminn sé ekki nógur og hugurinn fer með mig langar leiðir hvernig sé best að nota tímann.

 believe-love-hope-thumb21685118.jpg

Við fengum þær fréttir að æxli hafa dreift sér um allan heilann og lítið hægt að gera  nema lyfjameðferð sem gæti hægt á sjúkdómnum en ekki læknað eitt eða neitt og minn karl þurfti ekki langan tíma til að ákveða það að fara ekki í lyfjameðferð vegna hugsanlegra aukaverkana.  Hann vill fá gott sumar, njóta sólar og fara á alla þá fótboltaleiki sem hann getur án þess að ógleði og þreyta séu að gera út af við hann, æxlin sjá um það nógu fljótt.

Ég grét mikið í tvo daga og erfiðast var að tala við öll börnin en  þá spruttu mörg tár fram en eftir það sá ég að þetta var algjör eyðsla á dýrmætu tíma, tíma sem ég gæti notað í e-ð þarfara en að vorkenna sjálfri mér og fór að skipuleggja minn tíma. Vonlaust mál að skipuleggja tíma ektakarlsins því hann fer sínar eigin leiðir og fótboltaleikir stýra hans tíma.

Líka svolítið kómískt að segja fólki þessar fréttir og svo hittir það minn karl í Bónus og verður kjaftstopp.  Ferðirnar hans hafa minnkað þangað því miður en hann er ekkert veikur hér ...hann er þreyttur og syfjaður og það er það sem mun aukast og verða þau einkenni sem við finnum mest fyrir og jú minnisleysið sem er eintómt grín um það hvað það sé nú gott að geta gleymt og líka kúnst að þykjast gleyma.

Margir spyrja mig líka í kjölfar frétta hvort hann sé á sjúkrahúsi og hversu veikur hann sé.  Í mínum augum er hann ekkert veikur, hann er maðurinn minn sem er á þönum allan daginn og í vikunni sem leið var hann allan daginn að hjálpa nágranna að smíða pall og það kom ansi þreyttur karl inn til að fara að sofa en brosið náði hringinn...en fór beina leið í rúmið og svaf lengi.   Vikan þar á undan svaf hann 15-17 tíma á dag en svo kemur svona vika þar sem orkan er endalaus.

Breytingarnar munu koma nógu fljótt og ekkert hægt að undirbúa sig undir þær.  Fengum fyrstu heimsókn frá heimahlynningu Landspítalans en öll fjölskyldan mun njóta góðs af þessum heimsóknum sem eru til ..að auka og viðhalda lífsgæðum sem lengst.

Hafið það nú hugfast..notið tímann vel og í það sem þið viljið nota hann... en ekki það sem þarf að nota hann í....njóta !

 InLove..erfiðara að gefa af sér þessa dagana en það mun koma..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Inga María

Sendi þér risastórt knús og vona að þið fáið að njóta tímans ykkar sem best saman :*

Margret Hoskuldsdottir (IP-tala skráð) 8.6.2013 kl. 11:31

2 identicon

Þið eruð hetjur Inga mín

Hrafnhildur Inga Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 8.6.2013 kl. 11:55

3 identicon

<3

Sigurbjörg (IP-tala skráð) 8.6.2013 kl. 12:16

4 identicon

sendi ykkur risaknús héðan frá Sigló

Brynhildur Baldursdóttir (IP-tala skráð) 9.6.2013 kl. 17:04

5 identicon

Elsku Inga mín Guð styrkir í þessari baráttu með frænda minn. kv frá Óló

Jón H Jóhannsson (IP-tala skráð) 10.6.2013 kl. 21:09

6 Smámynd: Ragnheiður

Elsku kelli mín, er þá tíminn að verða liðinn ..Sendi þér orku og hugrekki og bið fyrir ykkur

Ragnheiður , 11.6.2013 kl. 22:02

7 identicon

Elsku vinkona. Ég er hérna þegar þú þarfnast mín. Þú ert hugrökk og fyrirmynd annarra - hreinskilin og einlæg og ástrík og svo margt fleira. 

Vilborg Davíðsdóttir (IP-tala skráð) 14.6.2013 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband