Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

...dagur vonar

Allt óbreytt...og við fórum dansandi út.

Anda rólega og fara snemma í rúmið með góða bók og alla þessa prinsa í kringum mig sem allir hrjóta í mismunandi styrk....ég mun njóta þess í kvöldLoL


Hugsanir á floti

Besta ráðið við kvíða er að hafa fólk í kringum sig og sína en varla gat ég dregið elsku frænda minn og frænku með mér upp í rúm og haft þau í millunni eins og prinsarnir tala um.  En ég naut þess að fá þau í mat og hugsa þannig um annað en það sem er framundan...sem er ekkert nema ein myndataka og það sem kemur úr henni. PÚFF!   Hef aldrei verið svona kvíðin og engan til að halla mér að...aðrir þurfa að halla sér að mér og ég verð áfram að vera sterki kletturinn.  Hafði mig í það að fara í leikfimi í gær og svei mér ef kella er ekki með taktana ennCool

Allt annað sett á bið í bili...


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband