Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Sofið með maurum

Allt gott í hófi mundu margir telja en heimasætan þarf að sjálfsögðu að taka allan pakkann.  Dustar fötin sína á morgnana í leit að kakkalökkum en maurar gera sér það að góða að fá að lúlla hjá henni á nóttinni.katrin_pictures_041.jpg

Hennar starf þarna úti er að taka viðtöl við foreldra sem eiga börn sem þau selja í vinnu í verksmiðjur yfir daginn en hafa áhuga á að bjóða þeim e-ð annað tækifæri ef það gefst.  Hún tekur líka viðtöl við börnin og það kemur skýrt fram hvað þau eru að hugsa, átta ára gömul  og það er fjölskyldan sem þau eru með í fyrirrúmi og jú þau vilja fara í skóla en þá er það oft hugsunin að læra e-ð sem kemur fjölskyldunni að notum. 300 rúbíur fær fjölskyldan i verksmiðjunum en þessi samtök bjóða 100 rúbíur ef þau leyfa barninu að fara í skóla.  Ef einhver hefur áhuga að styðja þetta starf þá endilega hafið samband við heimasætuna mína katarn87@gmail.com og hún svarar ykkur af miklum áhuga.  Á blogginu hennar kemur þetta svo skýrt fram í viðtölum hennar við börnin.   katrin_pictures_020.jpg

Herbergið hennar er vinsælt um þessar mundir hér heima, sjómaðurinn hefur skotið sér þar inn og svo er fíkílinn minn að bíða eftir plássi á Kotinu og hefur verið hér með annan fótinn. Við hin bíðum spennt eftir næstu dögum en prinsinn er að fara á Eyjamót og við ætlum öll að fylgja honum og styðja..Heart

 Allir semsagt að standa sig vel....í öllu sem þau eru að gera..ég dusta af mér rykið inn á milli...fór með elsta afleggjaranum mínum í bæinn í gær, á Jómfrúnna þar sem við ákváðum formlega að stefna á Eurovison að ári.  Osló og Alexander verða sem sagt fyrir léttu áfalli þegar við mætum á staðinn.   Hjúkkan hún systa mín ætlar að koma með okkur þannig að við ættum að vera í góðum málum.

InLove..þar til næst


Er í skýjunum....um að gera að njóta

Heimasætan dúxar..já verð að monta mig og er að gera svo flotta hluti út í Indlandi og ég hvet ykkur að lesa bloggið hennar um starfið hennar þar.  http://readssociety.blogspot.com/

Meðan sumir sigla sig í kaf þá er þessi stelpa að gera flotta hluti!

InLoveþar til næst...


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband