9.7.2007 | 19:50
Pokémon..æði
Við fórum aftur að kíkja á litla manninn...hann þekkti bílinn hennar ömmu sinnar löngu áður en ég þekkti þauen hann var í gönguferð þegar við komum inn götuna. Svolítið erfitt að fara frá honum því hann er ekki viss um hvort hann sé að koma eða fara með mér.
Hér í garðinum ríkir pokémon stríð...allir að skipta og reyna að plata litlu sakleysingjana en alltaf er minn maður viss um að hann sé búinn að gera góð skipti og þá hugsa hinir líka svoleiðis. Stórfurðuleg þetta líf sem fer svona i hringi..ekki langt síðan stóru bræður voru að iðka þetta og hafa lúmskt gaman að litla bror. Monster á spilum og úr verður ævintýraheimur. Gamla konan búin að vera svoo dugleg að bera á slitnu húsgögnin á pallinum...ég lofaði tengdasyninum að vera bara pínu i sólinni.....hann hefði nú skammast sín fyrir kellu í dag........Hún var i gömlu karlanærbuxunum og á brjósthaldaranum einum saman...vitandi það að engin kæmi núna að hlæja af henni...reyni eins og ég get að forðast þessa ljósargeisla svooo hann verði nú kannski brúnni en kella.
Kraftakarlinn bauð okkur í leikfimistíma á trampolíninu og strákarnir voru að í meiri en klukkutíma. Þarna er komin lausn á fituvandamálum landans...hoppa í hálf tima á dag..og allt rennur í burt. Kraftakarlinn bíður spenntur eftir að spússa hans komi aftur...telur dagana niður ...hann er svo frábær. Ekkert heyrist frá Perú...ætlaði að fara á hestbak í síðustu viku og teygjustökkið i gær...HEJA...Perufarinn hringdi Allt æði...brakaði í bakinu i teygjustökkinu...fékk sér góðan morgunverð með einum bjór og nokkrum tekíla skotum...mín kelling!!! Hestaferðin var creeepe, villtir hestar, hlaupandi i gegnum trjágróður þannig að andlitið er fullt af rispum. En hún er á lífi og farin að vinna á leikskóla...þar sem einn starfsmaður er með 24 börn 3-6 ára. Spennandi að vita hvað við prófum næst i gengum hetjuna okkar. Heyrumst...koss og knús
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.7.2007 kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.7.2007 | 20:25
Hola frá Mallorca :)
Loksins getum vid latid heyra í okkur . Allt er rosa gott hérna nema madurinn á bornum ekki alveg ad muna eftir sólarvorn . Hann gleymdi sér pínu í sjónum fyrsta daginn :) Bakid á honum er RAUTT . Erum búin ad fara í Marineland og sáum sjóljónin dansa , dekurrófan hafdi samt ekki mikid thol í sólinni svo vid fórum bara snemma. Hann er búinn ad kaupa eyrnalokka handa uppáhaldsfraenda sínum og keypti sér í stíl . Vorum ad versla í dag LÍTID :) ekki mikid haegt ad gera gód kaup hérna. Breki verslar mest og thá af dóti . Húsfreyjan á Mallorca er búin ad vera soldid ein á strondinni med dekurrófunni thar lídur honum best í flatarmálinu og med vindinn á sér . Madurinn á bornum langar helst ad sofa í sundlaugargardinum . Húsfreyjan og flugurnar eru bara í partýi saman enda búnar ad bíta hana einungis 10 sinnum get varla sofid nema í sokkum og med lakid pakkad yfir mér og viftuna á fullu . Forum á strondina á morgun og í festival park sem er outlet og skemmtigardur. Hugsum um litla kútinn okkar á hverjum degi og hann kemur pottthétt med naest ...kvedja frá litlu familíunni á spáni ...koss og knúsar kisskiss
6.7.2007 | 22:25
Ömmu hlutverkið
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.7.2007 | 15:21
Hér og þar
Færum okkar bara hingað yfir þar sem ekkert er hægt að blogga erlendis frá a gömlu síðunni.
Perúfarinn brjálaði heldur áfram að ögra okkur hinum með þvílikum lýsingum á líferni sinu...fögrum kroppum og öllum gerðum af drykkjarföngum...sumir mundu kalla þetta fikn..í að lifa lifinu til fullnustu..en hann á þetta alveg allt skilið...jammið og magapinuna sem getur fylgt. Hann er hetjan okkar og fyllir okkur hin dirfsku í að gera kannski e-ð meira með lífið. Held samt að hinir afleggjararnir mínir skilji ekki þetta brölt á henni eru enn fastir við heimahagana...sem er líka hið besta mál. Vona að hinir ferðalangarnir geti komið hér við og sagt okkur skemmtileg tiðindi af sér...knús til allra