23.8.2010 | 23:19
Við höfum hamingjuna að láni
Þvílík skemmtun og lán að eiga svona marga að sem vilja það eitt að hlæja með okkur....dansa og hlæja meira. Við fórum með heitin okkar á ný.og eins og það stendur í góðri bók
Við gátum með engum móti vitað til hvers
það myndi leiða, en við vissum að við urðum
að gera það.
Minn ektakarl var í essinu sín allan daginn og er enn....og farinn að plana næstu uppákomu enda ekki allir sem eiga svona gott gengi að góðum konum sem vilja allt fyrir manninn gera.
Rauður dregill fyrir gestina ....afleggjararnir sem á staðnum voru....fengu góða gæslu eftir að mjúkur mjöður fór að renna ofan í gestina en heimasætan mín....Afríkufarinn var með mest allt kvöldið.
Það var þreytt kona....ánægð kona....hlæjandi kona sem sofnað við það að hennar ektakarl bað hana vinsamlega að fara að hætta þessu blaðri svo hann gæti sofnað.....brúðkaupsnóttin ágæt ein...og enn meira gaman að vakna þegar ömmusonur (yngri í pössun hjá bestu ömmu sinni) og prinsinn komu með gjafir sem voru flestar þeim töfrum gæddar að þær eyðast....fyrir tvo! Sæla í fríi hjá okkur hjónakornin.....og það verður svo gaman. Afhverju er allt bara fyrir tvo sagði ömmusonur.....veit fólk ekki að við erum fleiri ...prinsinn fékk hláturskast...þar sem skilningurinn var meiri
...lífið er dásamlegt..
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 25.8.2010 kl. 16:59 | Facebook
Athugasemdir
takk fyrir mig. Knús á ykkur ÖLL
vinkonan (IP-tala skráð) 25.8.2010 kl. 18:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.