26.9.2011 | 00:48
Fullt tungl af hr.Krabba
Tikk takk...heyrist oft innra með mér og ég upplifi það að tíminn sé að renna út. Hugsa ekkert um hvaða tími en þessi biðstofufílingur um að við séum að bíða eftir einhverju sem er svo ekkert, er frekar leiðinlegur fylgifiskur minn. Að hugsa ekkert of mikið er líka hægt en við lifum í þessu öll og einhver verður að vera upplýstur og virka eins og svampur. Kann kannski bara ekki að gefast upp enda veit ég ekkert fyrir hverjum ég ætti að gefast upp!
Þetta æxli var sömugerða og hin, 3.gráðu en í þetta skiptið óx það inn í holinu eftir þau fyrr, sveif þar bara eins og fullt tungl og var með smáörvefi inn í heilahimnuna ...og það gerði doksan vissan un að þetta væri góðkynja. Ekki hafði hann rétt fyrir sér en nú var ekki í boði að fara í lyfjameðferð og ég ætla ekki einu sinni að hugsa út í það hvort það er gott eða vont. Minn ektakarl var að minnsta kosti ánægður að þurfa ekki að dæla þeim í sig. Hann hefur nóg að gera og velur eiginlega hverju hann gleymir og hverju hann man...svo lífið er dásamlegt segir hann.
Lífið er jú gott þegar allir eru frískir og það er það eina sem mig vantar inn í mitt líf, er að allir mínir séu frískir og sáttir.
..þar til næst
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:10 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.