11.8.2008 | 17:34
skellihlátur
Það er svo gott að hlæja og fylla á orkubrunninn. Skellihlátur minnir mig á heimasætuna mína í Víetnam sem veit ekki neitt verra en að lenda í hláturköstum með mér, á milli kviðanna heyrðist í henni stopp mamma.. stopp sem vakti annað kast hjá mér og við enduðum báðar hálfgrátand...en hlæjandi. Vöðvar sem við vissum ekki af aumir lengi á eftir. Ef ég hef ekki hlegið lengi...þá er tilfinningin eins og ég ímynda mér að kampavínsflösku liði..hmm..sem hefur verið hrist rækilega en tappinn er fastur svo ég legg mig í líma við að finna e-ð til að hlæja af...sem er nú margt og mikið það er bara að finna það og matreiða það þannig að hægt er að brosa af.
Yfir þessu myndbandi skellihló ég....ein heima...
Að hláturinn lengi lífið það veit ég ekki um því þá hlýtur gráturinn að gera það líka..og allt eru þetta tómar klisjur en gott er að gera bæði í bland.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:38 | Facebook
Athugasemdir
Barnabörnin mín elska hann í tætlur.
Ásdís Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 18:02
Vá bara 2 á dag hehehehe
Íris, 11.8.2008 kl. 20:03
Hann Hr.Baun er yndislegur! Hrikalega skemmtilegur og kitlandi fyrir kapavínslungað!
www.zordis.com, 13.8.2008 kl. 01:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.