Allt á hreinu

Í dag átti ég stefnumót við elsta afleggjarann minn í Kringlunni...tími og staður á hreinu en nú ætlaði hún ekki að minna mig á tímann.

                         systur...aþ  Ég ákvað að sanna mig og vera einu sinni réttum tíma og sýna þessari elsku að mamma kann þetta enn.  Því eftir margra ára uppeldi þar sem klukkan stjórnaði öllu þá hef ég hætt að nota það apparat.  Hún með allt á hreinu og klukkan stjórnar nú hennar lífi..þarf að panta bíl frá ferðaþjónustunni og þar er ekki mikið pláss fyrir að vera seinn..engar afsakanir teknar gildar.

Ég ákvað líka að vera fyrri til og ljúka því sem ég þyrfti að gera þannig að hún fengi tíma minn óskertan.  Hún byrjaði að versla inn svo það væri búið og þá var ferðinni heitið á Kringlukránna þar sem snæða átti hádegisverð. Eitt augnablik minnti hún mig á ömmu mína sem var með allt svona á hreinu...og ekkert múður með það! 

Franskar og eplakaka með rjóma og ís var á hennar matseðli og vildi hún helst að ég hjálpaði henni að matast því hún þurfti að ræða við mig um mikilvægt mál.  Kann ekki þá tækni móður sinnar að gera allt í einu... tjí hugsaði ég...önnur Danmerkurferð.

Nei það var umræðan um það að hún vill skipta út föðurnafni sínu...27 ára ung kona sem þarf að sækja um leyfi hjá lífföður sínum um að skipta út nafni hans sem er skeytt við hennar.  Hún er svo hrædd um að ég verði sár þegar fram líða stundir...því ekki ætlar hún að verða Ingudóttir...sem hún verður að sjálfsögðu alltaf....   nei  góður maður ( minn fyrrv. ektamaður)  fær þennan heiður hjá ungfrúnni.  Hún er svo ákveðin að ljúka þessu máli að margir mættu taka hana til fyrirmyndar hvað hún er fylgin sér.  En hún er kvíðin..treystir ekki á að lífffaðir samþykki þetta.  Bullið við þetta allt saman er að þurfa að sækja um leyfi...fullorðin manneskja...!

Svo er hún með áhyggjur af systkinum sínum...sem er nú að skriða saman aftur...birtir að nýju hugsa ég....áhyggjur af jóladögum...hvort mannað verður í kjarnanum.  Er þetta allt hugsaði ég.

Þar sem ég sat þarna á móti elstu dóttir minni þá fylltist ég miklu stolti..hún er með allt á hreinu..en samt ekki..þarf að treysta á aðra...en kemur sínum áhyggjum frá sér eins og um lítinn pakka sé að ræða..og þegar umræðan um þær er búin þá hefst næsti kafli.  

Þegar heim var komið þá uppgötvaði ég að kvöldmatur fjölskyldunnar hefði verið í pokanum hennar..hringdi og auglýsti eftir honum...mín tjáði mér þá bara að koma mér yfir og leita í frystinum hún hefði sko ekki getu til að leita í frystinum.   Ég sem ætlaði að dekra við kallinn sem varð nú að sækja sinn mat sjálfur.  InLove

hugs


Aftur og hvað svo?

Margt að gerast þessa dagana sem fær mig til að hugsa út í lífið almennt..ekki samt eins og það sé í fyrsta sinn en alltaf er það eitthvað sem minnir mig á hvað það er mikilvægt að meta lífið, sjá jákvæða þætti í öllu þessa neikvæða sem er í kringum mig.  Mikið hugsað um það hvenær hætti ég að ala upp börnin mín, ekki mitt að taka erfiðar ákvarðanir fyrir þau þó oft sé það þannig að ég plástra á bágtið.

Móðir, hvar er barnið þitt,
svona seint um kvöld?
Móðir, hvar er yndið þitt?,
þokan er svo köld.

Þokan sýnir hryllingsmynd,
þvöl er stúlkuhönd.
Út úr þokunni líður kynjamynd
með egghvasst járn.

Þetta lag hans Bubba segir allt sem er á bak við mínar hugsanir..og það sem ég vil helst ekki hugsa um en það poppar upp aftur og aftur.  4 vikur í bið eftir plássi á Vog...biðin sem fer verst með alla.  Tengdasonurinn að standa sig enn á ný og litlu prinsarnir hafa litla hugmynd um allt ruglið í kringum þá. Sem betur fer fyrir vini sem skilja og eru til í björgunaraðgerðir aftur og aftur.brostið hjarta 

Takk!


Verkin dæma þig

Mér ofbýður þetta sukk á mönnum sem fengu kosningu inn í borgarstjórn. Þarna er augsýnilega nóg af peningum og náttúrulögmálið allsráðandi.  Grunnsþjónusta við borgarbúa hlýtur að vera að allir borgarbúar búi við sama borð varðandi lífsgæði.  Nægir þar að horfa  til menneklunar á leikskólunum, þjónunsta innan grunnskólanna er lakari en áður og ummönnun aldraðra og öryrkja er sorgleg þar vantar fólk sem er menntað í málum þeirra.  Afhverju er það svo að nóg er til að fólki sem vill vinna með peningana okkar en minna um að fólk vilji vinna nálægt fólkinu í landinu. Ég tek ofan fyrir Svandísi Svarsdóttur að hjóla svona í þessi mál og gefa þeim enga grið fyrr en hreinsun hefur orðið á borði ekki bara í orði!!

Elsta dóttir mín er búin að leita mikið að menneskju sem vill vera liðveislan hennar og þegar það hefur tekist þá er ég alltaf jafn undrandi að einhver fáist til starfsins því launin eru bara brandari og í flestum tilvikum á er viðkomandi að mennta sig innan fötlunargeirans.  Heyrði frábært viðtal við Freyju á Bylgjunni á sunnudagsmorgun, sem er öllum stundum bundin við sinn hjólastól  þar sem hún segist sjálf fá að ráða þær manneskjur sem vinna með hana, erfitt verk en þessu stýrir hún sjálf

Ein grátleg saga af kerfinu:  Dóttir mín býr í sjálfstæðri búsetu eins og það kallast, ekki sambýli, en þjónusta er tiltæk 20 tíma á sólahring...já bara 20.  Hún þarf alla hjálp ...kemst ekki fram úr rúmi, klæða sig, wc. ferðir, böðun, og meira og meira.  En hún þarf enga hjálp við að hafa gaman af lífinu og það gerir hún stöðugt, stjórnar sínur græjum, tölvum og heimabíóinu með fjarstýringu úr hjólastólnum sínum. Ferðast þegar hún nær að safna fyrir sig og hjálparmönnum.  Ekki hægt að vorkenna þessari stelpu InLove  En semsagt hún  vildi láta setja upp betri dyrasíma.  Var með síma eins og flestir þar sem lyfta þarf tóli og ýta svo á taka til að hleypa inn..nei þetta gekkk ekki upp svo fyrst var sett upp kerfi þar sem hún gat opnað úr stólnum sínum og þá fyrir hverjum og einum.

Hún fær dyraat eins og aðrir og svo er til fólk sem misnotar sér svona aðstæður fólks og það hefur hún fengið að finna fyrir.   Svo hún sótti um til TR að fá betra tæki þar sem hún geti séð þá sem koma,,,myndsíma.  TR var til í að borga 25% í síma og uppsetningu en það ódyrasta var þá að dóttir mín borgaði 45000.  Þar þurfti hún samt að opna með fingunum til að heyra rödd viðkomandi...en ekki séð það og það var bara ekki nógu gott svo hún tók besta tilboðið þar sem hún sér viðkomandi í tölvunni sinni um leið og er hringt á bjöllunni fyrir utan og getur þá ráðið hvort hún hleypir inn eða talar við viðkomandi.   Tækni sem hentar hennar fötlun og hún getur stjórnað sjálf.  Þarna borgaði dóttir mín 200.000 í þessu apparati öllu.  Góðir aðilar styrktu hana og þar með gat hún látið drauminn rætast um að vera örugg á sínu heimili.   Þetta fannst fólki sem vinnur hjá TR bruðl...

Ef einhver þekkir einhvern sem hefur áhuga að vinna með fatlaðri ungri konu þá endilega benda á hana dóttur mín. Vinnan felst í því að fara með henni í  Kringluna, á kaffihús, bío eða hanga heima og kjafta og horfa þar á danskar myndir.  Ákjósanlegt ef viðkomandi hefði áhuga á danskri menningu.

Svona í lokin..hélt ég væri að verða betri,,,veit varla hvar samt en ég fór í jarðaför hjá fyrrum tengdapabba mínum, hlýjum og örlátum manni sem gerði allt fyrir alla og eftir á þá var augsýnilega of erfitt að sitja svona lengi í sömu stellingunni. 

Heyrði í forfallakennaranum mínum líka í gær og hann er búinn að segja uppLoL Þetta fer að verða spennandi skólaár fyrir stjórnendur er reyndur maður sem unnið hefur bæði kennslustörf, verið stjórnandi og kennt í unglingadeild er að gefast upp á skólastarfi eins og það er í dag.  Ég hér heima og hef lúmskt gaman af...mínir yndislegu nemendur gera aldrei neitt..algjörir englar...en gera hann andsnúnan kennslu!!  Kíkji í atvinnuauglýsingar svona við tækifæri..hmm.

knús 

 

  


Litlu börnin mín orðin stór!

Móðureðlið er sterkt afl og það er ekki neitt sem maður vill frekar en að vernda börnin sín...en börn verða ekki alltaf börn heldur sjálfstæðir einstaklingar með sínar skoðanir á lífinu.  Nú eiga litlu börnin mín tvítugs afmæli..og ég verð að vera svolítið upptekin af því að þau eru orðin fullorðin.

frogs5 4 og 5 merkur voru þau við fæðingu en nú er gæinn orðinn hátt i 2 metrar og prinsessan kvartar yfir að vera of lágvaxin.  Nei við fáum ekki allt sem við viljum í lífinu en hún er þó að láta drauma sína rætast og þó það sé sagt við hana í Afríku að hún sé varla belju virði þá mundi ég gefa ansi margar beljur fyrir að geta kysst hana og knúsað  í tilefni dagsins!  Bæði eiga við sína fötlun að stríða.. og taka sínar ákvaðrðanir og verða sjálf að taka afleiðingunumInLove.Prinsinn minn ætlar að baka köku fyrir stóra bror og vill setja kerti á...hmm já fyrir hann er  þau sko ekki orðin neitt fullorðin.  

vi ses! 


Katarína

k og strúturHér sjáið þið þessa elsku... fyrst faðma litla sæta strútinn og borða hann svo litlu seinna. 

Reiðtúr á strút..hvað næst?

 

bleika slaufanNú verður bara allt bleikt í einhvern tíma vegna átaks um að vekja almenning til umhugsunar um brjóstakrabbamein og ég hvet ykkur til að lesa www.bleikaslaufan.is

 Mér gengur bara ágætlega held ég að leika sjúkling en afleggjarar eiga e-ð erfitt með það.  Minn ektakarl dekrar við mig eins og hans er von og vísa...og held að þetta sé eitthvað sem hann sér í hillingum.  Hafa mig í rúminu allan  daginn, slappa og sjúskaða.   Hann er að fara í sína myndatöku á föstudag en skapið hjá honum undafarnar vikur hafa einmitt sagt mér það að hún væri á leiðinni.  Hann fær vonandi niðurstöður sama daginn.  Litla systir kom færandi hendi með margsskonar varning og allt í grænum lit. Fékk froska sokka sem æpa á mig allan daginn því þeir eru svo skrautlegir..en ég er ekkkert að reyna að kyssa þennan frosk!  Nú hlakka ég bara til að geta gefið mér tima til að hitta stoltið mitt, elsta afleggjarann á kaffihúsi og þurfa ekkert að vera að flýta mér..hún er í því að senda mér myndir og þætti sem ég á að horfa á.  Heimasætan í Afríku...ohh það sem hún er að prófa...ég fór að skellihlæja af lýsingum hennar á strútareiðtúr sem hún og vinkona hennar prófuðu en mér er það ómögulegt að gera tengilinn hennar virkan hér á síðunni,,,en held áfram að reyna.Blush  

knús 


Er endilega allt gull sem glóir?

Aum og þreytt eða þreytt og mjög aum...er að reyna að ákveða mig en já nú er skartgripaskrínið horfið. Doksi minn horfði á mig hugsi þegar ég spurði hann hvort ekki væri ætlunin að sjá vel um þetta skrín sem hefur hýst mína demanta. Hmm jú við skoðum þetta vel og þú færð niðurstöður eftir svona tvær vikur.Undecided Ég hugsa vel til hjúkkunar sem gaf mér...hmm..líknandi sprautu við verkjum...hinar vildu allar troða í mig töflum og sjá svo til...og anskoti þurfti ég sjá lengi til...og svo kom hún aftur á vakt!  Þetta er allt að koma núna...þurfti aðeins að pústa út þegar ég kom heim.  Villingurinn hafði haldið teiti kvöldið áður en ég kom heim...  já þið megið rasskella hann.. lyktin var ógeð fyrir mig með mína ógleði en samt hafði minn ektamaður þrifið það mesta...svo ég tók eitt stk. létt kast yfir drenginn. Lagði mig svo ...þurfti aðeins að hugsa hlutina upp á nýtt..vaknaði full af orku sársvöng og heimtaði minn mat.  Frekja..en svona var þetta á spítalanum, kom bakki með mat og þrátt fyrir ömulega líðan þá tók ég bita og bita og hugsaði þetta sem orkufyllingu.  

Nú hlakka ég til að kíkja í pokann sem vinkona mín gaf mér með öllum slúðurblöðum mánaðarins, eitt á dag kemur skapinu...kannski í lag.  Þessi elska kom með ávaxtkörfu fulla af blóðauðgandi vitamínum og öll þessi nýju blöð, fór í apótekið og breiddi síðan yfir mig og sagði mér að fara að slaka á.  Harður nagli sem glóir af góðmennsku ef hún veit að einhver þarfnast þess.

vinir

vi ses 


Skrýtnar sögur

Róleg heit...hvað er það?  Upplifi það oft eins og ég sé í erfiðri fjallgöngu...mikil áreynsla og það eina sem ég kemst að er hvar er lautin.  Lautarferðir þegar ég var yngri snerumst um okkur systkinin og það sem mamma hafði útbúið í nesti.  Í gær var erfið brekka.....mikið álag í vinnunni, sonurinn kominn heim með fullt af spurningum, prinsessan ekki að skilja það að ég væri ekki komin yfir til að sækja gjöfina mína, ömmustrákuri á vergangi og svo kom símtal frá Afríkunni um að heimasætan hefði slasað sig.  Um leið og allir þessir voru að reyna að ná tali á mér var ég að undirbúa viðtöl við foreldra, fara yfir bókhald með samstarfskonum mínum, setja annan í starfið og reyna að gleyma því hvað væri framundan Crying  Það tókst í gær!  Get hlegið af því núna að mitt í öllu ruglinu í gær þá þurfti ég að tala við minn fyrrverandi vegna heimasætunar að þá hringdi ég fyrst í minn ektamann og skellti svo á hann þegar ég fattaði að ég var ekki að tala við rétta manninn.  Grin Já svona er að fylgja ekki beinu...sléttu línunni í lífinu..þá fær maður svona erfiða fjallgöngu öðru hvoru.  Daman í Afríku hafði (bara) skorið sig ansi illa á glerbroti á einni tánni að ekki var hægt að loka sárinu og hún á ferðalagi í sveitaþorpi fyrir utan Cape town.  Mamma þetta bjargast sagði hún..og ég verð að treysta því. 

Góð vinkona í vinnunni sagði mér að vera  stillt við læknana því allir muna eftir  óþekku börnunum..hmm og ekki vil ég láta þá muna eftir mér.ónei!  Einn bjór með vinkonu og bókhaldið kláraðist í kvöld..vantar bara einn stimpil.  Freistandi að fara að gera eitthvað meira en held að ég sé á besta staðnum...upp í rúmi með guttann minn sofnaðan við hliðina á mér. 

hugs!

 


Söknuður

sadNú þegar styttist i það að sonurinn komi heim þá hellist yfir mig þessi tilfinning um að hinn helmingurinn af honum eigi lika að koma heim. Kannski  tengist þetta bara kviða...um að allt eigi að vera i lagi hjá henni og það er svo langt i hana.  Hún tekur strætó og þarf svo að  ganga ansi langt i vinnuna og svo aftur tilbaka i gegnum ekkert of gott hverfi...og er því að hugsa um að skipta um vinnustað.

Hef helgina til að njóta mín...slaka á og hafa Brekaling i fanginu í kvöld....eftir helgina kemur víst ný vika...með nýjum áherslum W00t

vi ses! 


Vog i Afríku !

Litla hetjan mín...hin vogin mín... er farin að vinna í skóla fyrir einhverf börn og segir það vera svolítið yfirþyrmandi. Það er nu ekkert skrytið...en vona samt að hún geti líka skemmt sér...og hlegið þarna með hinum sjalfboðaliðunum...oho það var svo gaman hjá okkur aður en hún fór út. W00t Ég get ekki hringt i hana og siminn minn neitar mér um að senda henni sms.   

Vika i aðgerð og min að gugna á þessu...ef það væri bara hægt að fá eina töflu og óó-ið farið!

Knus 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband