Pokémon..æði

 Við fórum aftur að kíkja á litla manninn...hann þekkti bílinn hennar ömmu sinnar löngu áður en ég þekkti þauHearten hann var í gönguferð þegar við komum inn götuna.  Svolítið erfitt að fara frá honum því hann er ekki viss um hvort hann sé að koma eða fara með mér.

Hér í garðinum ríkir pokémon stríð...allir að skipta og reyna að plata litlu sakleysingjana en alltaf er minn maður viss um að hann sé búinn að gera góð skipti og þá hugsa hinir líka svoleiðis.  Stórfurðuleg þetta líf sem fer svona i hringi..ekki langt síðan stóru bræður voru að iðka þetta og hafa lúmskt gaman að litla bror. Monster á spilum og úr verður ævintýraheimur.  Gamla konan búin að vera svoo dugleg að bera á slitnu húsgögnin á pallinum...ég lofaði tengdasyninum að vera bara pínu i sólinni.....hann hefði nú skammast sín fyrir kellu í dag....Whistling....Hún var i gömlu karlanærbuxunum og á brjósthaldaranum einum saman...vitandi það að engin kæmi núna að hlæja af henni...reyni eins og ég get að forðast þessa ljósargeisla svooo hann verði nú kannski brúnni en kella.

Kraftakarlinn bauð okkur í leikfimistíma á trampolíninu og strákarnir voru að í meiri en klukkutíma.  Þarna er komin lausn á fituvandamálum landans...hoppa í hálf tima á dag..og allt rennur í burt. Kraftakarlinn bíður spenntur eftir að spússa hans komi aftur...telur dagana niður ...hann er svo frábær.   Ekkert heyrist frá Perú...ætlaði að fara á hestbak í síðustu viku og teygjustökkið i gær...HEJA...Perufarinn hringdiWizard  Allt æði...brakaði í bakinu i teygjustökkinu...fékk sér góðan morgunverð með einum bjór og nokkrum tekíla skotum...mín kelling!!! Hestaferðin var creeepe, villtir hestar, hlaupandi i gegnum trjágróður þannig að andlitið er fullt af rispum.  En hún er á lífi og farin að vinna á leikskóla...þar sem einn starfsmaður er með 24 börn 3-6 ára.  Spennandi að vita hvað við prófum næst i gengum hetjuna okkar.   Heyrumst...koss og knús

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

spussa hans? eg segji nu bara hvad í #"$% er þad :) en ja þad var stud a trampolininu :D

Kraftakallinn (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 20:00

2 identicon

haha ja eg er rispud en a lifi.. :P river rafting kannski naest.. laet ykkur vita... hef tad mjog gott her, vona ad tid hafid tad somuleidis!!! beessooosss

Perufarinn (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 21:10

3 identicon

Jæja ég fann ykkur aftur. Vona að þessi stórfjölskylda verði dugleg að blogga svo maður geti fylgst vel með ykkur, hehehehe.

P.S.Er þessi Perufari nokkuð að fara yfir um af adrenalínkikki.

Njósnarinn (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 09:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband