Allt að þorna upp

Meiri sól og meiri sæla....einhverjir þarna upp eru fastir á copy takkanum og paste til skiptis....allt að þorna upp og samt vökvum við bæði gras, blóm og menneskjur!!    happy1           Ekki hægt að kvarta hér, nóg til af vatni  og sundlaug í næsta nágrenni.  

Litli kútur með það á hreinu að amma eigi allt...amma á....heyrist si og æ ...og afi hans glottir....já svona er þetta bara.

Stórfjölskyldan fór í Húsdýragarðinn og viti menn...danska prinsessan kom með okkur....frábært að hafa hana með.....Við fórum svo i mat til Lindu frænku í gær en þar á hann tvær frænkur sem dedúuðu við hann og hann var fljótur að venjast Vaski kallinum sem var nú ekkert hrifinn af þessum prinsi.  Fengum alveg frábæran mat, eldaðan af husbóndanum og eftirrétturinn sló i gegn...nammi namm.    Í morgun fórum við svo á rólo og þar kom nú í ljos að hann er um margt likur eldri bróður sinum í glannskapTounge   Enduðum daginn á að fara i sund með dekurkarlinum mínum en sá er orðin svartur á húð og allir spyrja hann hvort hann sé að koma frá utlöndum. Halo  Erum núna að skoða myndir af fjölskyldunni áður en hann ....ömmustrákur fer að sofa.   Stjúpsynirnir mættir á staðinn og verða í viku við mikinn fögnuð litla brors.  Hlökkum til að sjá ykkur...knús


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband