Óskageislar

Það getur verið svo gaman að gera það sem lengi hefur verið í óskapokanum og þannig losað um þröngar hömlur þess að það er hægt að gera, framkvæma það sem sumir vilja en aðrir ekki... það er hægt að vera sammála um að vera ósammála.

039.jpgUm síðustu helgi þá skellti ég mér til Akureyrar með prinsunum, einn stór draumur í dós!   Við leituðum mikið af piparkökuhúsinu sem ömmusonur var viss um að væri í skóginum. Prinsinn minn fékk að vera hestamaður í einn dag.. á Dalvík og tók á móti miklum fróðleik um umhirðu hesta...en þar var góð vinkona sem tók að sér frábært verk fyrir hungraða drengi. Töldum tröppurnar nokkrum sinnum upp að kirkjunni til að vera viss.h_s_hljop_843109.jpg..ömmusonur gafst upp á miðri leið!    

 

Brynjuís á dag kemur skapinum...Tounge

Við semsagt fylltum á geislabúrið og höldum ótrauð áfram...myndataka á morgun hjá mínum ektakarli InLove

 

 

breki_sprakk.jpg Þolmörk heimilsmanna eru teygð í allar áttir þessa dagana.  Heimasætan í prófum og er svo á leið til Indlands eftir tvær vikur, sjómaðurinn aflar vel en vill svo fá að vera heimilismaður hér þó mamma gamla hafi hent honum út nokkrum sinnum og allir sénsar eru uppurnir en múttu gömlu til armæðu.... svona haltu mér slepptu mér samband... þá á þessi yndislegi afleggjari fataskáp hér enn sem hann fær aðgang að undir ströngu eftirliti.   

Mikið í gangi hjá fíklinum mínum, sorglegt ferli sem tekur á alla að horfa á en ég er í góðri æfingu við að segja nei og vanda mig vel við það að vera ekki alltaf til staðar.  Oft á köflum full vinna að gera þetta!

Andstöðurþrjóskuröskun herjar því á mig á fullum krafti og ég mæti í mína leikfimistíma og hoppa þar upp og niður á pöllum eins og ekkert sé...og það er svo gaman að gefast ekki upp þó löngu gleymdir vöðvar finni til og neiti að fara eftir fyrirmælum.

InLove..þar til næst...

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mínar bestu óskir að allt færist til betri vegar hjá þér.

Ásta Einarsdóttir (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband