Slípa hnífinn...út með allan aukavöxt!

Ákveðið var að fjarlægja þetta æxli sem vill vera að troðast þarna inn í tóma rúmið, enda kannski ekki vanþörf á þegar það kom í ljós...að þarna var um upprunalega æxlið að ræða sem var fjarlægt fyrir 4 árum að hluta til en við vissum alltaf að það væru leifar eftir vegna þess hve langt það lá  inn í throttur.jpgmiðju heilans og engin áhætta tekin með það þá svo við vissum alltaf af þessum afgöngum.  Þarna var um 3.stigs og að hluta 4. stigs æxli og nú er það að vaxa áfram í hjólför fyrra æxlisins...sem er betra mál en ef það væri að fara í hina áttina.  Áfram er þetta alltaf að gerjast innan geislasvæðisins sem er líka gott...margt bara gott mál við þetta heilakrabbamein..sem þýðir líka að hægt er að fara inn á sama stað, opna títaníum hlíðið sem er þarna og þræða sig upp í sama farveginn...og burtu með þetta!  Fyrir okkur er þetta viss léttir að það er e-ð gert núna því erfitt hefði verið að hugsa um þetta eða ekki hugsa um þetta að næstu myndatöku sem hefði líklega sýnt okkur að þetta hefði stækkað og jafnvel í aðrar áttir...jafnvel og kannski eru orð sem við notum mikið enda mikil von í þeim.   Vonin um að hægt sé að ráðast á þetta..vísindunum fleygir fram, ný lyf alltaf að koma fram og tæknin er alltaf að verða betri og betri.

Þetta gerist líklega í næstu viku eða þarnæstu....minn ektakarl getur ekki lengur legið í dvala og látið eins og ekkert sé að...farinn út að hlaupa og koma sér í betra form.  

InLove...þar til næst

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 19.9.2009 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband