Hugrakka heimasætan min!

   s afrikaÞarna er hún einhversstaðar litla kellingin mín. Suður Afríka here I come.   Hún pakkaði niður á siðustu timunum og minn maður keyrði hana svo út á flugvöll á laugardagsmorgun..en hvar er hún nú.  Planið var að fljúgja til London -Madrid -Jóhannesarborg- og komast til Cape town..semsagt í gær..hún er þarna neðst á þessu korti...eins suður og hún kemst.  Meðan ég var að farast úr stressi á efri hæðinni þá var hún bara i rólega gírnum og á endanum gafst ég upp og fór niður til að yfirfara handtöskuna hennar. Hafa reglu á óreiðunni!  Knúsaði hana svo fast og lengi en vissi að það þýddi ekkert fyrir mig að skutla henni á völlinn..sniff..sniff. Þarna ætlar hún að una sér við sjálfboðavinnu og þá helst að leika trúð...í alvöru.  Sagðist ekki vera viss hvenær hún komi komi aftur en líklega fyrir jól Errm Litli bror lét hana lofa sér að fara ekki nálægt ljónum og alls ekki í sjóinn en hann gaf henni bland í poka sem ferðafélaga.  Svo nú bíð ég bara eftir að heyra i henni...annað kemst ekki að...en er líklega sest að á góðum kaffibar og ekkert að stressa sig á þvi að múttan hennar vill vita hvort hún sé komin á áfangastað.Ef þetta er ekki hetja.. Shockinghuggs


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband