björg í bú..

monk Að fá eitt svona stykki á eldhúsborðið vakti ekki mikla lukku hjá öllum heimilismönnum en húsmóðirin gerði að greyinu og sá fyrir sér heljarins veislu með vinum og vandamönnum.  Sjómaðurinn dró sem sagt björg í bú en neitar alfarið að læra að flaka eða gera að þessum skepnum....og ekki vill hann leggja sér þetta til munns!

  Sjómennskan hefur kennt honum mikið og ryður hann úr sér fróðleik um skepnur hafsins eins og hann hafi ekki gert neitt annað alla tíð.

Veisla sem sagt framundan...monk 1


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

OJOJOJ ekki eru þetta girnilegar skepnur og lyktin var ógeðsleg ..... Mér finnst ég stundum heppnasta stelpa í heimi ég á bestu og fallegustu fjölskylduna ..sterkustu og fyndustu :) Ég virkilega elska ykkur ÖLL .

Fíkillinn ;) (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 19:32

2 Smámynd: Ragnheiður

Sætt kommentið hér að ofan

en hann er ekki fríður kvikyndið. Ég borða hann stundum en finnst hann ekki það góður að ég reyni að kaupa mér hann sérstaklega. Helst ef ég fer út að borða með kallinum.

Knús og kær kveðja

Ragnheiður , 13.11.2008 kl. 20:36

3 identicon

Ohhhhhh hvað ég hefði viljað vera viðstödd með mína myndavél. 

Maddý (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 23:44

4 identicon

 I love you  ég elsa þig  jeg elsker dig

Rakel Hetjan þin (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 03:09

5 identicon

Flottir fiskar og frábært hvað drengurinn er ánægður með sjómannslífið

Vinkonan (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 08:57

6 Smámynd: Tína

Fallegt sem dóttir þín segir hérna fyrir ofan. En mikið hjartanlega er ég sammála henni að þetta er ekki girnilegasta skepnan. Mér finnst þú bara hörkunagli að borða þetta yfir höfuð!!

Verði ykkur að góðu og góða helgi

Tína, 15.11.2008 kl. 12:58

7 Smámynd: Inga María

...já þessi fisktegund er ekki fyrir alla að hreinsa...og ég sem er frekar klíjugjörn...en þar sem allir tala um að þetta sé dýrasti fiskur á veitingastöðum þá þykist ég flott og býð upp á þetta.  Verður gaman að upplifa aðra eta þetta....í kvöld  sýni þeim myndir af skepnunni á eftir!

Inga María, 15.11.2008 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband