Félagsheimili og fjör

Leiðin til þroska er skemmtileg og alltaf e-ð sem kemur manni á óvart..því er ekki að neita að sumu mundi jú kannski vilja sleppa....en ef þetta allt eykur þroska þýðir það ekki að ég sé ansi þroskuð??   En þetta er svona og ég þarf ekkert að vera að erfiða við að breyta þvi heldur bara halda áfram að reyna að hafa gaman af þessu öllu..og það að hlæja af þessu öllu það er á við besta meðal.

Allt í einu á ég nýtt barn...eða hvað..því elsta dóttirinn skipti út föðurnafni sínu og er núna komin með sama föðurnafn og tvíburarnir í fjölskyldunni.  Ekki allir ánægðir með þá þróun skilst mér en hún kallar allt það fólk bara aula.   Elsti sonurinn kom á hnjánum og bað um húsaskjól á meðan hann reynir enn að koma undir sig fótunum og þá var ég bara ekki tilbúin að taka erfiðar ákvarðanir og er enn með þetta á ís...en hann er að standa sig og hefur lúmskt gaman að að heimilið er orðið eins og áfangaheimili...útivitartími og alles!   Eiginmaðurinn talar um að svenherbergið sé orðið eins og samkomusalur og viti menn...enn er nóg pláss og þar sem hann sofnar snemma þá geta mýsnar farið að leika sér og þá er minn besti í símanum að ráðskast um heimilismenn og þeirra vandamál.  Katarína stóð sig frábærlega við að vera túlkur þegar við vinkonurnar tókum á móti ítölskum og spænskum kennurum  og sýndum þeim land og þjóð.  Hún var líka gerð að heiðursborgara í Padova og henni boðið húsakjól og hjálp við hvað eina. En núna er hún að skipuleggja ferð til Víetnam og það í fjóra mánuði....hjálpi mér !

 Ömmustrákur er kominn með rúmið sitt í hornið hjá ömmu en  skriffinskan hjá Barnavernd og fleirum í kringum svona mál eru leiðinleg..og leiðinlega hluti geri ég helst ekki.   Ef fólk vill hitta mig þá gjöra svo vel að koma til mín því ekki tek ég frí frá kennslu til að sinna svona málum...líklega ekki nógu áhugaverð fyrir ljónynju eins og mig.  Nóg að gera í vinnunni...mikið álag og gæðin minnka með hverri kennslustund sem kennarar bæta á sig.   Er að komast á þá skoðun að leggja allt batteríið niður að byrja að nýju.  Þjónustumiðstöðin í hverfinu sagði já við umsókn minn i um kæra sála...en hvað annað hægt að gera við konu eins og mig  W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Datt í hug að þú myndir blogga í dag. Auðvitað ekki að hvíla þig hehehe.

Katarína bara snillingur.

Gæðin skipta alla vega ekki foreldra máli bara að liðið sé á vísum stað.
Þegar þú ferð til sála mundu þá að tala um þig en ekki alla hina.  

Knús á þig og þína.

P.s. er pláss fyrir okkur líka

vinkonan (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 16:56

2 identicon

Alltaf pláss þó ég sé dugleg við að segja NEI...en annað kvöld fær fíkillinn í meðferð að lúlla hjá syninum...og þau eru tvö sem hlakka mikið til! Karlinn talar um að selja inn.

kellingin (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 20:07

3 identicon

Hvað kostar inn?

vinkonan (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 17:03

4 identicon

einn kaldann...og ekkert tal um þreytu eða vinnu

Kella sjálf (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband